Reiknifræði

Reiknifræði er íslenskun á 'computational science' eða 'scientific computing'. Varast skal að rugla reiknifræði saman við tölvunarfræði sem er íslenskun á 'computer science' eða hagnýttri stærðfræði sem er íslenskun á á 'applied mathematics'. Reiknifræði er þverfaglegt rannsóknasvið sem tengir saman hagnýtta stærðfræði (þá einkum tölulega greiningu), tölvunarfræði, stærðfræðilega líkanagerð og tölvureikninga í vísindum, t.a.m. eðlisfræði, efnafræði, líffræði og jarðfræði.